Persónuverndarstefna Boða

Drög, síðast uppfærð 3. nóvember 2026. Lögfræðingur á eftir að yfirfara þau.

Boði er samskiptaforrit frá Tento ehf., kt. [kennitala], [heimilisfang] („Tento“, „við“). Tento er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga sem unnið er með í Boða. Hafðu samband á [netfang] um allt sem varðar persónuvernd.

Það sem við getum ekki séð

Skilaboð, myndir, myndbönd, raddskilaboð og límmiðar sem þú sendir eru dulkóðuð enda á milli í símanum þínum (MLS-samskiptareglan). Lyklarnir eru aðeins í tækjum fólksins í samtalinu. Tento hefur þá ekki og getur hvorki lesið skilaboðin þín né afhent þau öðrum. Sama á við um dulkóðað öryggisafrit: það er læst með endurheimtarlykli sem aðeins þú hefur.

Upplýsingar sem við vinnum með

Til hvers

Til að veita þjónustuna (skrá þig inn, koma skilaboðum til skila, endurheimta afrit), til að verjast misnotkun og svikum, til að stýra áskrift og kaupum, og til að uppfylla lagaskyldur. Grundvöllur vinnslunnar er samningur við þig (notkunarskilmálar), lögmætir hagsmunir af öruggri þjónustu og, þar sem við á, samþykki þitt (t.d. tilkynningar).

Við seljum aldrei upplýsingar um þig, notum þær ekki í auglýsingar og það eru engar auglýsingar í Boða.

Vinnsluaðilar

Við notum: hýsingaraðila fyrir þjóninn ([nafn, land innan EES]), póstþjónustu fyrir innskráningarkóða ([nafn]), Expo (tilkynningar, sem sendir áfram til Apple og Google), Apple og Google (forritaverslanir og greiðslur), RevenueCat (umsýsla áskrifta) og Auðkenni/Kenni (rafræn skilríki). Enginn þeirra fær aðgang að efni skilaboða.

Hve lengi

Aðgangsupplýsingar eru geymdar þar til þú eyðir aðganginum. Þú getur eytt honum hvenær sem er í Ég → Aðgangur og öryggi → Eyða aðgangi. Þá eyðum við strax nafni, notandanafni, netfangi, fingrafari kennitölu, tengiliðum, lokunum, öryggisafriti, prófílmynd og innskráningum. Skilaboð sem aðrir hafa þegar fengið eru áfram í tækjum þeirra. Dulkóðaðar skrár hverfa innan 30 daga. Tilkynningar um misnotkun eru geymdar meðan málið er til skoðunar og þeim er eytt 90 dögum eftir að það hefur verið afgreitt.

Beiðnir lögreglu og annarra yfirvalda

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka vinnslu og flytja þær. Hafðu samband á [netfang]. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Börn

Boði er ætlaður fólki 13 ára og eldri.

Breytingar

Ef við breytum stefnunni látum við vita í forritinu áður en breytingin tekur gildi.